„Geymist á fallegum stað.“Að ítölskum sið er rauðvínið í beljunni gott matarvín. Það hefur góða snerpu sem gerir því kleift að standa uppi í hárinu á fjölbreyttum mat, allt frá pasta og pizzum í steikur. Upplagt með hvers konar grilluðu grænmeti og kjöti.
Hvítvínið er líka gott matarvín. Það er frísklegt umfram allt, sem léttir lund og bætir hverja máltíð. Það hentar sérstaklega vel með grænmetisfæði, léttari fiskréttum og hvers lags pasta.
Beljan kom í Vínbúðirnar Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi þann 1. september og kostar bara 5.490 kr.